Já hann BÍTUR sko alveg þessi boli núna...
ég hélt bara að mælirinn væri belaður þegar ég kíkti á hann í
morgun.... -15!!!!!!! OMG!!! Og alveg svona æðislega týpiskur
aulabárðamorgun... brjálaður kuldi, sprungið á bílnum og
Arndísin þurfti að labba og ná strætó, á því labbi fraus
nebbinn minn alveg í hverjum andardrætti ásamt öllu andlitinu
og ég hélt að fæturnir ætluðu bara að gefast upp þeim var svo
kalt og þeir urðu svo stirðir Brrrrrrr..... Gallabuxur voru
greinilega ekki alveg buxurnar fyrir kulda dagsins!!! En ég
þakka þó fyrir að hafa ákveðið á seinustu stundu að hafa
arabaklútinn í staðinn fyrir alla þessa minna hlýju klúta sem
ég er búin að sanka að mér uppá síðkastið úr
spútnik og rauða krossinum.... En jiiiii minn hvað ég á ekki
eftir að meika þennan vetur ef þetta verður oft svona!!! Ég
er alltof mikil kuldaskræfa fyrir þetta og þá langar mig bara
til að liggja í heitu baði en ég hef engan tíma fyrir það...
auk þess á ég ekkert bað svo að það er ennþá glataðara
hehe svo að mín bara stólar á kakó og te tilsað ilja
kroppnum.....
Þannig að algjörlega must fyrir veturinn 2006
1. Legghlífar.... mjög þægjó og gott fyrir kuldann og very 80's
sem er nottla algjörlega uppáhalds þessa stundina....
2. Klútar!!! í öllum stærðum og gerðum, litum og munstrum, gott
fyrir hálsinn og líka mjög flott! Geta verið elegant eða funky

3. Húfur.... Þá er nottla þykka stóra prjónahúfan laaaaang best,
eða þá rússahúfan með eyrunum ogloðninu innan á en svoleiðis húfur
eru nú ekkert spes flottar svo að maður heldur sig held ég bara við
101 rottu húfuna loðnu. Annars er lang skemmtilegast að eiga húfur
í öllum stærðum og gerðum og breyta doldið til... ekkert gaman að
vera alltaf eins og mín er að spegulera í að splæsa sér í eins og
einni kjút alpahúfu
já og svo er nottla alltaf hægt að vera með
derhúfur eins og fást í Brim og sonna.
4. Vettlingar!!! Hvort sem það eru leðurhanskar, lúffur,
ullarvelsur eða bara ósköp venjulegir hanskar.... Mitt val er samt
að eiga þá í nokkrum freaky litum og klippa framan af allavega
einum og hafa sem grifflur en vera samt í öðrum innan undir, mjög
colourfull og skemmtó 
5. Föðurlandið!! Eða ég er allavega að gera stórleit núna að
almennilega góðum ullarsokkabuxum til þess að geta verið í freaky
sundbolaefnisleggingsunum yfir og þá getur maður verið í pilsi án
þess að vera nokkuð kalt, svo nottla leggings yfir!
6. úlpa úlpa úlpa!!!!!! Já og snjóbuxur ættu líka allir að eiga
að sjálfsögðu!
An þessara hluta myndi Arndísin ekki lifa veturinn af!!!
En já ég hef annars voða lítið að segja, lýtur út fyrir að mín
fái engar myndir af tískusýningunni svo að það er eila ógessla
fúlt! Meira en ever mikið að gera í skólanum núna og ég þarf eila
bara ALLTAF að vera að læra
svo að þetta laugardagskvöld verður
tekið í rólegheit og þá getur maður kannski verið í lærdómnum
aðeins á morgun, það er að segja ef ég á ekki að vinna! En hér er
eitt af gersemunum sem verið er að gera í skólanum....

Já æðislega flottur vasi finnst ykkur ekki...??? Ég er sko búin
að gera alveg heilan helling af allskonar vösum svo að ég verð
showuð í jakkafötin og draktirnar
talandi um draktir þá vorum
við akkurat að taka Christian Dior (uppáhalds) fyrir í
tískuteikningunni í vikunni, teiknaði eina frægustu drakt allra
tíma...
Bar
suit from the New Look collection, 1947
Love it!!! http://www.designmuseum.org/design/christian-dior og
svo er einmitt mynd af kallinum að vefja eitt módelið
bara inní efnið, enda frægur fyrir það að nota rosalega mikið efni
í dressin sín, mest notaði hann í einn kjól 60 metra af efni VÁ!!!!
En allavega algjör snillingur og alveg uppáhalds!!!
En það verður samt allavega enginn BARINN í kvöld..... honum og
hans CRAZY walls verður sárt saknað

Svo verður nottla möst að taka einn feitan djammus fyrir próf og
annan eftir fróf áður en manni verður sökkt í vinnu tólf tíma á
dag........ en ég ætla núna að fara að vinna aðeins áður en lokar
hjá okkur og klára þennan dag sem við héldum að yrði rosa lélegur
útaf þessari nýju verslun sem var að opna í dag.... Max dæminu
semsagt en þeir bara kúkuðu uppá bak og fólk er að koma og kaupa og
kaupa hjá okkur því að það var svo óánægt með Max! Svo að það er
búið að vera BRJÁLAÐ að gera hjá okkur í dag!!! Öss öss.....
En ég ætla að enda þessa færslu með nokkrum myndum frá seinustu
helgi

Andreu jakkinn sem mín varð ástfangin af!!!

kúra með kisunni hennar

Drean að taka lagið!!! ;D

VIRGIN jamm einmitt Drea mín 

Ég og Harpa Gella

ELSKA veggina þarna inni.... ef þið þekkið Barinn þá vitiði hvað
ég er að gera á þessari mynd 


á barnum á Barnum
með SÚBlanderinn (",)

ég og Kobbikall á kofanum
Peace out homies 

ArnDísan*****